Enn eru laus pláss - sláið til!

Björgvin Eggertsson, skógfræðingur hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, kennir trjáfellingar og grisjun með keðjusög á námskeiði sem fram fer á Hallormsstað dagana 17.-19. október. Teknir verða inn tíu nemendur á námskeiðið og umsóknarfrestur hefur nú verið framlengdur um nokkra daga.

Námskeiðið er öllum opið. Það hentar þeim sem ekkert kunna á keðjusagir og vilja læra á þær. Einnig þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða vilja öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Hámarksfjöldi þátttakenda er 10. 

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Fyrsti dagur er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu. Leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli. Einnig verður fjallað um val á trjám til fellinga og komið inná grisjun skóglenda, trjáþyrpinga og garða. Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar með því að taka þær í sundur. Komið verður inná hvernig framkvæma eigi einfalda bilanaleit í söginni, ásamt því að læra hefðbundið viðhald, þrif sagar og brýningu keðju. Loks verður einn og hálfur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.

Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm taki það með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnað lánaðan á námskeiðinu.

Kennari: Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur hjá LbhÍ.

Tími: Þri. 17. okt. kl. 9:00-17:30, mið. 18. okt. kl. 9:00-17:30 og fim. 19. okt.. 9:00-16:00 (3x) á Hallormsstað (28 kennslustundir). Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til 1 einingar af námi í garðyrkjufræðum.

Skráningarfrestur var til 10. október en hefur verið framlengdur um nokkra daga.

Verð: 48.500 kr. (kennsla og gögn innifalin í verði).