Hólasandur var gróið land fram á 19. öld og þegar uppgræðsla hófst á sandinum fyrir aldarfjórðungi m…
Hólasandur var gróið land fram á 19. öld og þegar uppgræðsla hófst á sandinum fyrir aldarfjórðungi mundu elstu menn eftir rofabörðum sem þar stóðu enn fram á 20. öldina. Hægt og bítandi grær sandurinn nú aftur upp

Veitir styrki til margvíslegra landbótaverkefna

Landgræðsla ríkisins auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr Landbótasjóði Landgræðslunnar, en sjóðurinn úthlutar árlega styrkjum til margvíslegra landbótaverkefna til bænda, sveitarfélaga, félagasamtaka og annarra umráðahafa lands. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 20. janúar. Athygli er vakin á því á vefsíðu Landgræðslunnar að meðal þess sem sjóðurinn styrkir er endurheimt votlendis.


Við ákvörðun um styrkveitingar er m.a. lögð áhersla á:
• Stöðvun hraðfara jarðvegsrofs og gróðureyðingar.
• Endurheimt gróðurs, jarðvegs og votlendis.
• Að landnýting verði sjálfbær.

Við mat á umsóknum er enn fremur tekið tillit til þess hvort gerð hafi verið landgræðslu- og landnýtingaráætlun til a.m.k. þriggja ára fyrir það svæði sem ætlunin er að vinna með. Sérstök athygli er vakin á að sjóðurinn styrkir aðgerðir til endurheimtar votlendis og land friðað fyrir beit nýtur að öðru jöfnu forgangs við ákvörðun um styrkveitingar.

Styrkur til einstakra verkefna getur að hámarki numið 2/3 af áætluðum kostnaði þess að mati Landgræðslunnar. Landgræðslan veitir ráðgjöf við framkvæmd þeirra verkefna sem sjóðurinn styrkir og hefur jafnframt eftirlit með framvindu þeirra og metur árangur.

Umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur sjóðsins eru á heimasíðu Landgræðslunnar (www.land.is). Einnig er hægt að nálgast þessi gögn og fá nánari upplýsingar á hérðassetrum Landgræðslunnar og á skrifstofu Landgræðslunnar í Gunnarsholti. Smellið hér til að komast á síðu með umsóknareyðublöðum.

Eins og fyrr segir hefur umsóknarfrestur verið framlengdur til 20. janúar nk. og umsóknir skal senda á netfangið land@land.is eða til Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hella.