(Mynd: Úr Rjóður í kynnum)
(Mynd: Úr Rjóður í kynnum)
Í tilefni af alþjóðlegu ári skóga árið 2011 hafa Skógræktarfélag Íslands og Arion banki gefið út kortið Rjóður í kynnum en í því er að finna upplýsingar um 50 áhugaverða útivistarskóga um land allt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skógræktarfélagi Íslands.

Skógarnir eru af öllum stærðum og gerðum, langflestir í alfaraleið og margir í næsta nágrenni við helstu þéttbýlisstaði. Þeir eru því upplagðir áningarstaðir fólks sem á leið um landið. Eins og nafn kortsins gefur til kynna er megintilgangur þess að vekja athygli landsmanna á skógunum og hvetja þá til að staldra þar við og eiga ánægjulegar stundir í skjóli trjáa. ,,Rjóður í kynnum“ er kjörinn ferðafélagi hvort sem fólk hefur brennandi áhuga á útivist og náttúruskoðun eða er aðeins að leita að fallegum stað til að teygja úr stirðum leggjum eftir langa ökuferð.

Á kortinu má sjá staðsetningu reitanna og einnig er stutt lýsing á hverjum og einum reit ásamt upplýsingum um aðstöðu/þjónustu á staðnum og GPS-hnit sem auðveldar fólki að finna þá.

Kortinu verður dreift endurgjaldslaust í útibúum Arion banka, upplýsingamiðstöðvum ferðamála, garðplöntusölum og víðar.

frett_20062011_2


Myndir: Úr kortinu Rjóður í kynnum