Endurmenntun Landbúnaðarhákóla Íslands, í samvinnu við Skógrækt ríkisins, stendur fyrir námskeiði í tálgun og námskeiðum í húsgagnagerð úr skógarvið víðsvegar um landið. Mikil ásókn hefur verið í þau fimm námskeið sem búið er að halda frá í haust.

Húsgagnagerð úr skógarefni

Staðsetning: Snæfoksstaðir í Grímsnesi (24.2.2012), Skógræktin á Vöglum (16.3.2012), Skógræktin á Hallormsstað (30.3.2012),

Námskeið sem hefur þróast upp úr námskeiðinu Lesið í skóginn tálgað í tré sem hefur verið kennt í frá árinu 2001 og hefur notið mikilla vinsælda.

Námskeiðið er öllum opið. Það hentar t.d  smíðakennurum, almennum kennurum, sumarbústaðafólki, skógareigendum, skógræktarfólki, handverksfólki og öðrum er vilja læra hvernig hægt er að smíða úr því efni sem er að falla til við grisjun. 

Á námskeiðinu:

  • lærir þú að nýta grisjunarefni í húsgagnagerð og aðrar hagnýtar nytjar,
  • þú kynnist eiginleikum einstakra viðartegunda og nýtingu þeirra,
  • lærir þú að setja saman kolla og bekki úr greinaefni og bolviði/ skógarfjölum,
  • þú kynnist fersku og þurru efni og samsetningu þess,
  • þú lærir að afberkja, ydda, setja sama og fullvinna húsgögnin, yfirborðsmeðferð og fúavörn.

Öll verkfæri og efni til staðar. Verið í vinnufatnaði á námskeiðinu. Allir fara heim með einn koll og bekk.

Tálgunarnámskeið - ferskar viðarnytjar

Námskeið hefst þann: 13.4.2012       
Staðsetning: LbhÍ Reykjum

Námskeið sem hefur þróast upp úr námskeiðinu Lesið í skóginn tálgað í tré sem hefur verið kennt í frá árinu 2001 og hefur notið mikilla vinsælda.

Námskeiðið er öllum opið. Það hentar t.d  kennurum, sumarbústaðafólki, skógareigendum, skógræktarfólki, ömmum, öfum  og öðrum er vilja læra hvernig hægt er að nota ferskan við úr skóginum, garðinum eða sumarbústaðarlandinu.  

Á námskeiðinu:

  • lærir þú öruggu hnífsbrögðin sem auka afköst og öryggi í tálgun með hníf og exi
  • kynnist þú ýmsum íslenskum viðartegundum, eiginleikum þeirra og nýtingarmöguleikum
  • þú lærir að tálga nytjahluti og skrautmuni úr efni sem almennt er kallað “garðaúrgangur”
  • þú lærir að grisja tré og hvar má finna efni í einstök tálguverkefni
  • þú lærir að umgangast og hirða bitáhöld í ferskum viðarnytjum, hnífa, klippur, exi og sagir
  • þú lærir að fullgera tálguhluti, þurrka, pússa og bera á
  • þú lærir að lesa í skógarefnið út frá útliti, eiginleikum og notagildi gripanna
  • þú lærir að skefta, búa til sleif, fugl, bolla, snaga eða það sem hugur þinn og geta leyfa

Allt efni og áhöld eru til staðar á námskeiðinu. Verið í vinnufatnaði þegar þið komið eða takið með ykkur svuntu og fatnað eftir veðri vegna skógarferðar. Hægt verður að kaupa tálguhníf á námskeiðinu fyrir þá er vilja.


Frekari upplýsingar og skráning: Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands.