Lárus Heiðarsson í vel hirtum skógi sínum á Droplaugarstöðum Fljótsdal. Skjámynd úr myndbandinu „Hir…
Lárus Heiðarsson í vel hirtum skógi sínum á Droplaugarstöðum Fljótsdal. Skjámynd úr myndbandinu „Hirðum um skógana!“

Í nýju myndbandi sem Skógræktin hefur gefið út fer Lárus Heiðarsson, skógræktarráðgjafi og skógarbóndi, yfir helstu atriði sem hafa ber í huga við skógarumhirðu svo skógurinn verði verðmætur nytjaskógur í fyllingu tímans.

„Skógrækt er ekkert öðruvísi en hefðbundinn landbúnaður, eftir því sem þú sinnir honum meira því betri verður hann,“ segir Lárus í myndbandinu. Hann er bæði skógarbóndi á Droplaugarstöðum í Fljótsdal og skógræktarráðgjafi hjá Skógræktinni. Þar sinnir hann þjónustu við skógarbændur á Austurlandi en einnig margvíslegri ráðgjöf og þróunarstarfi, ekki síst á sviði skógarumhirðu.

Lárus segir að sé ætlunin að rækta gæðatimbur verði að sinna skóginum snemma með tvítoppaklippingu og snyrtingu. Lárus er skógfræðingur að mennt og skógurinn hans ber bæði vott um kunnáttu og metnað við nytjaskógrækt á íslenskri bújörð.

Texti: Pétur Halldórsson