Hér sést hæsta tré landsins skaga upp úr lundinum ofan við gamla sláturhúsið á Klaustri
Hér sést hæsta tré landsins skaga upp úr lundinum ofan við gamla sláturhúsið á Klaustri

Sverasta tréð geymir vel á þriðja rúmmetra viðar

Skógarvörðurinn á Suðurlandi var á ferðinni á Kirkjubæjarklaustri í byrjun mánaðarins og mældi hæð trésins sem talið er vera hæsta tré landsins. Tréð er sitkagreni sem gróðursett var árið 1949. Ýmsir hafa slegið máli á þetta tré undanfarin ár og mældist það 26,1 m á hæð um miðjan ágúst á síðasta ári. Ekki skal sagt til um hvort tréð hækkaði mikið haustið 2014 eftir að það var mælt en í mælingum 8. september 2015 reyndist það vera um 27 m hátt.

Skekkjumörk eru meiri á þessari mælingu en á mælingu síðasta árs sem var gerð með nákvæmara tæki. Samt sem áður má fullyrða að hæð þess er að nálgast 27 metra múrinn eftir gott vaxtarsumar. Fleiri tré í skóginum voru mæld og reyndust a.m.k. tvö sitkagreni til viðbótar vera komin yfir 25 metra hæð og fjöldi trjáa yfir 20 metra hæð.

Eitt af gildari sitkagrenitrjánum á Kirkjubæjarklaustri var einnig mælt. Var það ríflega 25 metrar á hæð og 65 cm í þvermál í brjósthæð. Gera má ráð fyrir að slíkt tré innihaldi vel á þriðja rúmmetra viðar og að í því sé bundið hátt í tonn kolefnis (C). Þá hefur það bundið á þriðja tonn af koltvísýringi (CO2).

Á meðfylgjandi myndum má sjá Einar Bjarnason við hliðina á hæsta tré landsins og einu af sverustu trjánum í Klausturskóginum. Einar hefur um árabil haft umsjá með skógarreitnum og viðhaldi gönguleiða í skóginum á Kirkjubæjarklaustri fyrir Skógrækt ríkisins. Á yfirlitsmynd yfir skóginn og Kirkjubæjarklaustur má sjá hæsta tré landsins skaga upp úr lundinum ofan við gamla sláturhúsið á Klaustri.

Sitkagrenið sem Einar Bjarnason, umsjónarmaður skógarins á Klaustri,
stendur hér við mældist 65 cm í þvermál í brjósthæð.

Texti og myndir: Hreinn Óskarsson