Starfsfólk Héraðs- og Austurlandsskóga og Skógræktar ríkisins á Austurlandi gerðu sér dagamun þann 25. júni, óku norður í land og gróðursettu tæplega 4.000 tré á Hólasandi. Hólasandur er gríðarlega stórt landgræðslusvæði norðan Mývatns sem Landgræðsla ríkisins hefur verið með í uppgræðslu með hvatningu frá HÚSGULLi á Húsavík og aðstoð Pokasjóðs. Skógrækt ríkisins og fleiri aðilar hafa þar einnig komið að með tilraunir og gróðursetningu trjáa. Hluti svæðisins er samningsbundið Landgræðsluskógum og eykst áherslan á gróðursetningu trjáa ár frá ári.

Í ljós hefur komið að birki, lerki, stafafura og fleiri trjátegundir lifa ágætu lífi innanum lúpínuna á Hólasandi og verða birkiplönturnar sem austanfólk gróðursetti góð viðbót. Veður var líka hið ákjósanlegasta – skýjað, 10 stiga hiti og næg gola til að halda mýinu niðri að mestu. Svo fór að rigna þegar verið var að gróðursetja síðustu plöntuna.