Tveir Svíar eru um þessar mundir að gera myndband um skógrækt á Íslandi.  Þetta eru Carl Boutard nemandi á fyrsta ári við Listaháskóla Íslands og Magnus Thorén blaðamaður við Sænska ríkisútvarpið.  Gerð myndbandsins er verkefni Carls við Listaháskólann.  Þeir félagar hafa verið leiddir um skóglendi á höfuðborgarsvæðinu og er myndin úr ferð á Heiðmörk.