Séð til skógræktarsvæðisins á Arnaldsstöðum í Fljótsdal. Ljósmynd: Pétur Halldórsson
Séð til skógræktarsvæðisins á Arnaldsstöðum í Fljótsdal. Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Yggdrasill Carbon hefur fengið útgefnar fyrstu íslensku vottuðu kolefniseiningarnar. Þær koma úr nýskógræktarverkefni á vegum félagsins á Arnaldsstöðum í Fljótsdalshreppi. Framkvæmdastjóri félagsins segir þetta stórt skref og hann finnur fyrir miklum áhuga hjá fyrirtækjum að tryggja sér þessar einingar.

Frá þessu er greint í tilkynningu sem Yggdrasill Carbon sendi frá sér í gær. Þar er bent á að gera þurfi greinarmun á vottuðum kolefniseiningum sem hafa raungerst og vottuðum kolefniseiningum í bið sem eigi eftir að raungerast. Þá sé afar mikilvægt að gera greinarmun á verkefnum sem hlotið hafa vottun og þeim sem enga vottun hafa fengið. Einingar eru í bið allt þar til bindingin á bak við þær hefur orðið í skóginum, verið staðfest og ferlið vottað. Þá hafa þær raungerst og eru nothæfar á móti losun í grænu bókhaldi.

Fyrstu vottuðu kolefniseiningarnar á Íslandi eru vottaðar af iCert eftir kröfum Skógarkolefnis Skógræktarinnar, sem byggt er á breska staðlinum UK Woodland Carbon Code. Nú hafa verið gefnar út vottaðar kolefniseiningar í bið í Loftslagsskrá og er hver og ein eining komin með raðnúmer (e. serial number). Sem dæmi er fyrsta raðnúmerið FCC-ICE-354-17-2027-CC-1-00000000 þar sem gert er ráð fyrir að hún verði fullgild árið 2027.

„Það er stórt skref fyrir okkur að fá útgefnar fyrstu íslensku vottuðu kolefniseiningarnar. Satt að segja er ég einstaklega stoltur af þessu og er þetta mikil viðurkenning fyrir okkar vinnu,“ segir Björgvin Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri Yggdrasils Carbon, í tilkynningunni. Og áfram er vitnað í Björgvin:

„Við höldum okkar vinnu áfram og trúum því að vottaðar kolefniseiningar séu eina leiðin áfram til þess að styðja við gagnsæja upplýsingagjöf í loftslagsbókhaldi fyrirtækja. Þá erum við mjög stolt af því að hafa staðið við stóru orðin og ekki farið að selja einingar fyrr en þær hefðu hlotið vottun. Aðgerðir í loftslagsmálum eru ekki skyndilausnir og því er mjög mikilvægt að stofnanir og fyrirtæki styðji með ábyrgum hætti við verkefni sem geta tryggt þeim kolefnishlutleysi árið 2040 í samræmi við markmið og skuldbindingar íslenskra stjórnvalda. Það þarf að byrja strax til að tryggja árangur árið 2040 og við finnum fyrir miklum áhuga fyrirtækja á að tryggja sér þessar nýju einingar sem munu byrja að raungerast vel fyrir árið 2040.“

Frétt: Pétur Halldórsson