Nú stendur yfir námskeiðið Lesið í skóginn og tálgað í tré  í Hamraskóla í Grafarvogi á vegum Sr. og Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur.

Í fyrsta skipti er foreldrum og börnum boðið að vera saman á slíku námskeiði og stendur það fram á vor.   Á myndinni má sjá foreldra leggja sig alla fram eigi síður en börnin.