Land að gróa upp. Ljósmynd Pétur Halldórsson.
Land að gróa upp. Ljósmynd Pétur Halldórsson.

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur látið hefja forathugun á sameiningu tveggja lykilstofnana í loftslagsmálum, Skógræktarinnar og Landgræðslunnar. Með því að sameina fagþekkingu og krafta þessara stofnana verði til öflug stofnun sem sinni ráðgjöf við nýtingu lands og styðji við eflingu allra vistkerfa og landgæða til framtíðar.

Þetta kemur fram í frétt á vef ráðuneytisins þar sem segir að stofnanirnar vinni báðar að vistvernd og nýtingu lands og þar með að mörgu leyti hliðstæð verkefni sem snúa að losun og bindingu gróðurhúsalofttegunda. Landgræðslan og Skógræktin eigi báðar ríka og farsæla sögu um samstarf með grasrótarsamtökum, almenningi og landeigendum. Það umhverfi sem stofnanirnar vinna í hafi tekið hröðum breytingum, og væntingar almennings og stjórnvalda hafi breyst. Ákvörðun matvælaráðherra sé tekin með tilliti til þessa, augljósrar skörunar verkefna og mikillar samlegðar.

Samræmd stefnumótun

Samkvæmt nýjum lögum um skógrækt og landgræðslu skal gera stefnumarkandi áætlanir um landgræðslu og skógrækt til lengri tíma, segir jafnframt í frétt ráðuneytisins. Í matvælaráðuneytinu sé jafnframt unnið að því að samræma tillögur í eina heildaráætlun sem nær m.a. yfir verndun og endurheimt vistkerfa, náttúrumiðaðar lausnir í loftslagsmálum, og sjálfbæra landnýtingu. Þessi nálgun muni einfalda til muna forgangsröðun og þannig stuðla að aukinni skilvirkni og auknum árangri.

Sameinuð fagþekking myndar öfluga stofnun

Ráðuneytið bendir á að síðustu ár hafi bæði Landgræðslan og Skógræktin aukið ráðgjöf til landeigenda og unnið að mörgum samvinnuverkefnum með þeim. Þar má m.a. nefna skógrækt á lögbýlum og verkefnið Bændur græða landið. Sérfræðingar beggja stofnananna búi yfir mikilli sérhæfðri þekkingu og öflugar rannsóknir á vistkerfum, gróðurfari og loftslagi séu stundaðar af beggja hálfu.

„Með því að sameina fagþekkingu og krafta þessara stofnana verður til öflug stofnun sem sinnir ráðgjöf við nýtingu lands og styður við eflingu allra vistkerfa og landgæða til framtíðar,” segir Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra í fréttinni á vef matvælaráðuneytisins.

Sett á skogur.is: Pétur Halldórsson