Næstkomandi laugardag, þann 27. júní, verður hinn árlegi Esjudagur en sama dag verður boðið upp á fuglaskoðun í Vaglaskógi.

Esjudagurinn: Að vanda verður farið í ratleik í hlíðum fjallsins, gengið á Þverfellshorn og Trjásafnið á Mógilsá skoðað. Sveppi kemur í heimsókn og tekur þátt í húllumhæi með börnunum á bílastæðinu við Kollafjörð.
Sjá heimasíðu Ferðafélags Íslands.

Fuglaskoðun í Vaglaskógi: Sverrir Thorstensen mun leiða fuglaskoðun í Vaglaskógi kl. 11:00 í skóginum. Bílum er lagt við búðina í Vaglaskógi. Gott að hafa með sér kíki.

Allir eru velkomnir á þessa viðburði.