Karl- og kvenblóm á evrópulerki. Mynd: Pétur Halldórsson.
Karl- og kvenblóm á evrópulerki. Mynd: Pétur Halldórsson.

Umsóknarfrestur til 10. maí

Erfðanefnd landbúnaðarins auglýsir eftir styrkumsóknum til verkefna sem stuðla að varðveislu erfðaauðlinda í íslenskum landbúnaði. Verkefni sem tengjast íslenskum skógum koma þar meðal annars til greina.

Í auglýsingu um styrkina á vef erfðanefndarinnar segir að meginhlutverk hennar sé að vinna að varðveislu og sjálfbærri nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði. Í því skyni hafi nefndin ákveðið að verja fjármunum í að styrkja einstök afmörkuð verkefni sem falla að því hlutverki. Vísað er til stefnumörkunaráætlunar erfðanefndar um nánari áherslur nefndarinnar sem er að finna á vefsíðu hennar, www.agrogen.is. Lögð er áhersla á að styrkja verkefni á eftirfarandi sviðum:

  • rannsóknir er lúta að varðveislu og viðhaldi á erfðaauðlindum í landbúnaði
  • lokaverkefni til prófs á háskólastigi er tengjast varðveislu og/eða nýtingu á erfðaauðlindum í landbúnaði
  • aðgerðir sem stuðla að sjálfbærri varðveislu og/eða nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði
  • kynning og fræðsla fyrir almenning um erfðaauðlindir í landbúnaði og gildi þeirra

Einstaklingar og félagasamtök eru hvött til að sækja um styrki til verkefna sem hafa það að markmiði að stuðla að varðveislu og/eða sjálfbærri nýtingu innlendra erfðaauðlinda í landbúnaði. Að jafnaði verða veittir styrkir á bilinu kr. 200-700 þúsund krónur. Sérstök eyðublöð má finna á heimasíðu erfðanefndar,  www.agrogen.is.

Umsóknum skal skilað fyrir 10. maí 2017 til Birnu Kristínar Baldursdóttur, Landbúnaðarháskóla Íslands, Hvanneyri, 311 Borgarnes (birna@lbhi.is).