Fjórða opna hús skógræktarfélaganna árið 2010 verður þriðjudagskvöldið 23. mars og hefst kl. 20:00, í fundarsal á jarðhæð Arion-banka, Borgartúni 19. Gengið er inn um aðaldyr að austanverðu og er salurinn á vinstri hönd.

Jón Guðmundsson, garðyrkjufræðingur, mun segja frá eplatrjám á Íslandi en hann er þekktur í garðyrkjugeiranum fyrir ræktun sína. Honum hefur tekist að rækta eplatré og önnur ávaxtatré í garðinum sínum er stendur alveg niður við sjó. Einnig verður komið inn á önnur ávaxtatré sem reynslan sýnir að geta vaxið hér á landi ef vel er að hugað.

Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.


Mynd og texti: Skógræktarfélag Íslands