Blómstrandi sproti á stafafuru. Mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir
Blómstrandi sproti á stafafuru. Mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir

Ellefu umsækjendur eru um stöðu skógræktarstjóra, en umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsti starfið laust til umsóknar þann 3. október síðastliðinn.

Umsækjendur eru:

  • Aðalsteinn Sigurgeirsson, skógfræðingur og forstöðumaður Rannsóknastöðvar skógræktar, Mógilsá
  • Björn Bjarndal Jónsson, framkvæmdastjóri Suðurlandsskóga
  • Edda Sigurdís Oddsdóttir líffræðingur
  • Guðmundur Guðbergsson, Platoon Commander
  • Hreinn Óskarsson skógfræðingur
  • Jón Ágúst Jónsson forstöðumaður
  • Lárus Heiðarsson skógræktarráðunautur
  • Loftur Þór Jónsson lektor
  • Páll Sigurðsson, Ph.D. og skógfræðingur
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir framkvæmdastjóri
  • Þröstur Eysteinsson, sviðsstjóri þjóðskóganna

Umsóknarfrestur var til 19. október sl. og mun valnefnd meta hæfni og hæfi umsækjenda og skila greinargerð til umhverfis- og auðlindaráðherra sem skipar í stöðuna til fimm ára að ráðningarferli loknu.