(Mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir)
(Mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir)

Skógræktin óskar eftir að ráða skógræktarráðgjafa vegna bændaskógræktar á Vesturlandi. Leitað er að öflugum einstaklingi sem er tilbúinn til að takast á við umfangsmikil verkefni í krefjandi og breytilegu umhverfi. Skógræktarráðgjafi heyrir undir skógarauðlindasvið stofnunarinnar.

 

Helstu verkefni:

  • Ábyrgð á verkefnum er lúta að starfsemi bændaskóga á Vesturlandi.
  • Umsjón með ráðgjöf til skógarbænda um gróðursetningu, grisjun og aðra umhirðu.
  • Umsjón með áætlanagerð einstakra svæða og úttektum þeirra.
  • Vinna að kynningarmálum og gerð fræðsluefnis.
  • Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur og eiginleikar:

  • Háskólagráða í skógfræði eða tengdum greinum
  • Reynsla af ráðgjöf og áætlanagerð.
  • Reynsla af gerð kynningar- og fræðsluefnis.
  • Þekking og reynsla af skógrækt og starfsemi bændaskógræktar.
  • Færni í að koma upplýsingum frá sér.
  • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Skipulag, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Launakjör, umsóknarfrestur og nánari upplýsingar:

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr 70/1996.

Umsóknarfrestur er til og með 12. september nk. Staða skógræktarráðgjafa á Vesturlandi er fullt starf með starfstöð á Hvanneyri. Vinsamlega sendið umsóknir ásamt ferilskrá og staðfestingu á menntun í heimilisfang aðalskrifstofu:

Skógræktin, b/t skógræktarstjóra
Miðvangi 2-4
700 Egilsstöðum

Nánari upplýsingar veita: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, sviðstjóri skógarauðlindasviðs (sigga@skogur.is), Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri (throstur@skogur.is) eða Gunnlaugur Guðjónsson fjármálastjóri (gulli@skogur.is).

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við hvetjum bæði karla og konur til að sækja um starfið.

Um Skógræktina

Skógræktin er ný ríksstofnun sem formlega varð til 1. júlí 2016 við sameiningu Skógræktar ríkisins og landshlutaverkefna í skógrækt. Á komandi mánuðum verða innleiddar breytingar á starfseminni í átt að betri árangri í skógræktarstarfinu. Sviðstjórar Skógræktarinnar vinna að innleiðingu breytinganna ásamt fagmálastjóra og skógræktarstjóra.

Hlutverk Skógræktarinnar er að hafa forystu um uppbyggingu skógarauðlindar á Íslandi með því að kalla eftir víðtækri samvinnu við skógargeirann, vinna að verndun og friðun skóga og kalla fram hagrænan, umhverfislegan og samfélagslegan ávinning af sjálfbærri nýtingu skóga.

Skógræktin rækir hlutverk sitt með því að veita framlög og ráðgjöf til skógræktenda, reka þjóðskógana, sinna rannsóknum og hafa forystu um að afla og miðla þekkingu á skógrækt á Íslandi. Jafnframt með því að hvetja til og eftir atvikum leiða samvinnu og ráðgjöf á sviði skógræktar á Íslandi með áherslu á sjálfbærni, eflingu byggðar, verðmætasköpun og mótvægisaðgerðir vegna loftslagsbreytinga.