Kjötmjöli dreift til uppgræðslu lands í Þjórsárdal á vegum Hekluskóga sem eru samstarfsverkefni Skóg…
Kjötmjöli dreift til uppgræðslu lands í Þjórsárdal á vegum Hekluskóga sem eru samstarfsverkefni Skógræktar ríkisins, Landgræðslu ríkisins og fleiri.

Átta umsækjendur eru um embætti landgræðslustjóra, en umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar þann 5. mars síðastliðinn. Þetta kemur fram á vef umhverfis- og auðlindaráðuneytisins í dag.

Umsækjendur eru:

  • Anna Guðrún Þórhallsdóttir, prófessor hjá Landbúnaðarháskóla Íslands

  • Árni Bragason, forstjóri NordGen

  • Benedikt Arnórsson, bóndi

  • Eydís Líndal Finnbogadóttir, forstöðumaður sviðs miðlunar og grunngerðar hjá Landmælingum Íslands

  • Guðmundur Stefánsson, sviðsstjóri á landverndarsviði hjá Landgræðslu ríkisins

  • Rannveig Anna Guicharnaud, jarðvegsfræðingur hjá Resource and Climate Consultancy

  • Rodrigo Ademar Martinez Catala, Environmental Educator hjá Camping La Belvedere

  • Þórunn Pétursdóttir, landgræðsluvistfræðingur hjá Landgræðslu ríkisins

Umsóknarfrestur var til 20. mars sl. og mun valnefnd meta hæfni og hæfi umsækjenda og skila greinargerð til umhverfis- og auðlindaráðherra sem skipar í stöðuna til fimm ára að ráðningarferli loknu.

Fréttin á vef ráðuneytisins