Gert er ráð fyrir að síðan verði tilbúinn í nóvember/desember.  Síðan birtist ekki á leitarvélum á meðan unnið er að uppsetningu en hægt er að setja inn slóðan www.skogur.is og fylgjast með framgangi verksins...
Ný heimasíða RSr á Mógilsá er í vinnslu og mun verða í vinnslu næstu mánuði. Unnið er að gerð heimasíðunnar í forritinu SoloWeb 2.4 og er hún vistuð hjá Vefsýn hf. Lesendur síðunnar eru beðnir afsökunar á þessu ástandi...
Út er komið nýtt tölublað af Riti Mógilsár sem fjallar um myrkvun trjáplantna í gróðrastöð og áhrif myrkvunar á frostþol. Höfundar eru Hrefna Jóhannesdóttir og Öyvind Meland Edvardsen og byggir ritið að mestu á mastersverkefni Hrefnu við Landbúnaðarháskólann á Ási...
Nýr starfsmaður Dr. Bjarni Diðrik Sigurðsson hefur hafið störf á Mógilsá. Bjarni útskrifaðist frá skógfræðideild Sænska Landbúnaðarháskólans í Uppsölum í janúar síðastliðnum og hét lokaverkefni hans "Environmental Control of Carbon Uptake and Growth in a Populus trichocarpa Plantation in Iceland"...
Unnið er að uppfærslu á fræðslusíðu skógur.is.  Verið er að setja inn texta úr bók Sigurðar Blöndals og Skúla Björns Gunnarssonar, Íslandsskógar sem kom út hjá Máli og mynd árið 1999....