Nýtt myndband Skógræktarinnar um skóga og sjálfbært þéttbýli

Alþjóðlegur dagur skóga er 21. mars. Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO, ákvað að yfirskrift dagsins árið 2018 skyldi vera „skógar og sjálfbærar borgir“. Skógræktin hefur gert myndband í tilefni dagsins þar sem tíundaðir eru kostir þess og mikilvægi að rækta tré í þéttbýli og gera umhverfið heilsusamlegra og búsældarlegra.

Ýmis vandi fylgir þeirri þróun að sífellt stærri hluti mannkyns búi í borgum og öðru þéttbýli. Mengun og svifryk ógnar heilsu fólks og fólk fjarlægist náttúruna ef ekki er gætt að því að færa náttúruna inn í borgirnar. Það er einmitt markmið FAO með þessum degi nú, að hvetja til þess að náttúran verði færð inn í borgirnar með auknum gróðri.

Tré eru einhverjar öflugustu lífverur jarðarinnar. Með markvissri notkun trjágróðurs í þéttbýli má draga úr mengun og hávaða, jafna hitasveiflur, stuðla að vatnsvernd, efla útivist, auka umferðaröryggi og fleira og fleira. Í myndbandi Skógræktarinnar sem gert er í tilefni af alþjóðlegum degi skóga eru þessir þættir tíundaðir.

Um myndatöku og klippingu sá Hlynur Gauti Sigurðsson en þulur og höfundur texta í myndbandinu er Pétur Halldórsson.

Gleðilegan alþjóðlegan dag skóga!

Skógar og sjálfbært þéttbýli - alþjóðlegur dagur skóga 2018

Texti: Pétur Halldórsson