Lesið í skóginn - Þjórsárskóli.
Lesið í skóginn - Þjórsárskóli.

Bændablaðið segir frá

Starfshópur um undirbúning skipulags landnotkunar í dreifbýli hefur skilað umhverfis- og auðlindaráðherra áfangaskýrslu.

Dregin eru fram í skýrslunni atriði sem huga þarf að í tengslum við landnotkun í landsskipulagsstefnu, meðal annars stuðningur við skógrækt með tilliti til mismunandi skógræktarskilyrða. Frá þessu segir í Bændablaðinu sem kemur út í dag.

Frétt blaðsins er á þessa leið:

Starfshópur um undirbúning skipulags landnotkunar í dreifbýli hefur skilað umhverfis- og auðlindaráðherra áfangaskýrslu.

Dregin eru fram í skýrslunni atriði sem huga þarf að í tengslum við landnotkun í landsskipulagsstefnu. Meðal þess sem hópurinn telur að fjalla þurfi um eru skilgreining og flokkun á landbúnaðarlandi, skilgreining á því hvað dregur að ferðamenn og hvernig það verði best varðveitt, endurheimt vistkerfa, stuðningur við skógrækt með tilliti til mismunandi skógræktarskilyrða og skipulag og mannvirkjagerð við uppbyggingu sem tengist ferðaþjónustu.

Í skýrslunni er einnig fjallað með almennum hætti um landnotkun í dreifbýli, rýnt í þróun landnotkunar síðasta áratug, helstu breytingar og árekstra sem upp hafa komið og hvernig helstu hagsmunaaðilar sjá fyrir sér landnotkun þróast á næstu árum. Eins eru dregnar saman helstu tillögur og niðurstöður sem unnar hafa verið á síðustu árum, meðal annars af starfshópum á vegum stjórnvalda. 

Starfshópurinn var skipaður af umhverfis- og auðlindaráðherra í nóvember 2013 og hefur það meginmarkmið að vinna faglegan grundvöll fyrir framlagningu landsskipulagsstefnu 2015-2026 varðandi landnotkun í dreifbýli og sjálfbæra landnýtingu.

Á vef ráðuneytisins kemur fram að starfshópurinn vinni nú að því að gera grein fyrir því hvernig leggja megi mat á sjálfbærni landnýtingar fyrir mismunandi landnotkun, setja fram tillögur um það viðmið og draga saman yfirlit yfir mælikvarða sem nýta má í þeim tilgangi.