Larix gmelini

Hæð: fremur lítið tré, ætti að geta náð allt að 15 m hæð hérlendis

Vaxtarlag: Einstofna tré með mjóa, óreglulega krónu

Vaxtarhraði: Lítill

Landshluti: Einkum í innsveitum um norðanvert landið

Sérkröfur: Ljóselsk tegund

Styrkleikar: Sérstakt vaxtarlag sumra kvæma

Veikleikar: vorkal nánast á hverju vori, hægur vöxtur

Athugasemdir: Kajanderlerki, olguflóalerki, prins rúprektslerki, kúríleyjalerki o.fl. „tegundir“ frá austasta hluta Norður-Asíu eru svipaðar og af flestum taldar undirtegundir dáríulerkis. Engin þeirra er nægilega vel aðlöguð vetrarhlýindum til að geta þrifist vel hérlendis. Þó hefur dáríulerki ættað frá Sjakalíneyju (eða blendingar þess við aðrar lerkitegundir) náð nokkrum þroska