- 23 stk.
- 22.04.2020
Starfsfólk Skógræktarinnar fagnar degi jarðar í dag með margvíslegum verkefnum í skógunum og meðal annars eru gróðursettar trjáplöntur á stöku stað eða unnið að stiklingarækt og annarri fjölgun efniviðar til skógræktar. Skógræktin hvetur starfsfólk sitt til að gróðursetja tré í dag og senda myndir til birtingar á skogur.is. Einnig má senda myndir af ýmsu öðru úr skógræktarstarfinu, hvort sem það tengist plöntuuppeldi með sáningu eða stiklingarækt, grisjun eða annarri umhirðu skóga, rannsóknum, ráðgjöf eða öðru í starfi Skógræktarinnar. Myndirnar verða birtar í myndasafninu hér fyrir neðan og bætast við í dag og næstu daga eftir því sem þær berast.