- 8 stk.
- 11.07.2019
Íslandsmeistarakeppnin í skógarhöggi sem fram fór á Skógardeginum mikla 22. júní var geysispennandi en á endanum fór einn starfsmanna Skógræktarinnar með sigur af hólmi, Bjarki Sigurðsson, verkstjóri í starfstöð Skógræktarinnar á Hallormsstað. Skógardagurinn mikli var nú haldinn hátíðlegur í Mörkinni í Hallormsstaðaskógi fimmtánda árið í röð. Áætlað er að um 1.700 manns hafi sótt viðburðinn að þessu sinni. Dagskráin var fjölbreytt að vanda og með hefðbundnu sniði.