- 22 stk.
- 22.09.2019
Nordgen hélt árlega haustráðstefnu sína á Hótel Örk í Hveragerði 17.-18. september 2019. Viðfangsefni ráðstefnunnar var skógarheilsa í framtíðinni og hélt breski skógfræðiprófessorinn Hugh Evans inngangsfyrirlestur um flutningsleiðir skaðvalda um heiminn og varnir gegn þeim. Alls voru tíu fyrirlestrar haldnir fyrri daginn en þann seinni var farið í skoðunarferð um Suðurland, að ForHot-skóginum í Reykjadal, í Garðyrkjuskólann að Reykjum, aspartilraunareitum í Hrosshaga Biskupstungum, á Hekluskógasvæðið og endað í Sagnagarði Landgræðslunnar í Gunnarsholti.