- 10 stk.
- 03.06.2019
„Það er gott fyrir jörðina að planta trjám,“ sögðu nemendur í Grunnskólanum í Þorlákshöfn á föstudag þegar gróðursett var á Hafnarsandi í Ölfusi í tilefni af því að Yrkjusjóður, Skógræktin og Landgræðslan hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um aukna gróðursetningu grunnskólabarna og fræðslu fyrir þau um samspil kolefnisbindingar, landnotkunar og loftslagsmála.
Hópur barna úr skólanum tók þátt í gróðursetningunni ásamt Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra. Fjallað var um gróðursetninguna á fréttavefnum sunnlenska.is og rætt við ráðherra. „Yrkjusjóður hefur gert börnum um allt land kleift að taka þátt í að binda kolefni úr andrúmslofti. Með því að efla verkefnið geta enn fleiri börn tekið þátt í að takast á við eina stærstu áskorun þessarar aldar, loftslagsvána. Verkefnið felur jafnframt í sér endurheimt birkiskóga og lífríkis landsins sem stjórnvöld leggja nú stóraukna áherslu á,“ sagði Guðmundur Ingi í spjalli við sunnlenska.is.