- 8 stk.
- 17.10.2019
Þriggja daga námskeið í grisjun fyrir starfandi skógarhöggsmenn var haldið í Heiðmörk í október 2019. Espen Kirk Hansen, skógarvörður hjá Óslóarborg, fór er á fræðilegan hátt og verklegan yfir helstu þætti í vinnu skógarhöggsmanna. Námskeiðið var á vegum Skógræktarfélags Reykjavíkur en norska sendiráðið tók að sér að greiða götu Espens hingað til lands og gera námskeiðið mögulegt. Þátttakendur voru úr öllum landshlutum, meðal annars tveir skógarhöggsmenn úr hverju skógarvarðarumdæmi Skógræktarinnar sem eru fjögur talsins. Þar var líka skógræktarnemi sem starfar með námi hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur, tveir danskir skógtækninemar, grisjunarmaður sem starfar í skógum á útmörk Reykjavíkurborgar og tveir starfandi verktakar í skógrækt og trjá- eða skógarumhirðu.