- 10 stk.
- 14.11.2019
Grisjun í Haukadalsskógi í Biskupstungum í nóvember 2019 skilaði minnst 800 rúmmetrum af timbri. Stórvirk vinnuvél var notuð við verkið. „Skógarnir eru auðlind sem skilar okkur sífellt meiri afurðum,“ sagðiTrausti Jóhannsson, skógarvörður á Suðurlandi, í samtali við Morgunblaðið sem fjallaði um málið 13. nóvember á forsíðu og ítarlegar á innsíðu. Fram kemur þar að grisjunarviðurinn sem nú fellur til í Haukadal er að stórum hluta rauðgreni og stafafura sem nýtast mun sem eldiviður í ofnum járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga. Talsvert nýttist þó í annað líka, til dæmis í fiskihjalla og girðingarstaura og eitthvað er smíðaviður.