- 41 stk.
- 25.03.2020
Á þessum erfiðu tímum þegar kórónuveiran hrellir þjóðina, aðskilur fólk og bælir niður þjóðfélagið erum við beðin að forðast nánd og snertingu. Knúsin við annað fólk verða að bíða. En þá er gott tækifæri til að upplifa gott knús við tré. Trjáknús er heilandi og læknandi athöfn. Gæti þess að knúsa ekki of stutt. Takið utan um tréð og bíðið þangað til þið upplifið hvernig tréð gefur ykkur af lífsmagni sínu. Þetta virkar, sannið þið til!
Hér eru myndir af starfsfólki Skógræktarinnar og aðstandendum við þessa nytsömu iðju, að knúsa tré. Trjáknúsarar allra landa sameinist! Knúsum tré og útbreiðum skóga heimsins á ný. Klæðum landið!