Lat: Fraxinus

Askur (fræðiheiti: Fraxinus) er ættkvísl blómstrandi trjáa af smjörviðarætt (Oleaceae) en af sömu ætt eru líka sýrenur (Syringa) og ólívutré (Olea).

Meira um

Asktegundir eiga heimkynni suður um Evrópu frá Noregi og allt austur í Asíu en einnig í Norður-Ameríku. Til ættkvíslarinnar teljast 45-65 tegundir runna og trjáa sem flest eru sumargræn en syðst á útbreiðslusvæðinu finnast sígrænar asktegundir. Sú tegund sem gengur undir heitinu askur verður allt að 40 m há í heimkynnum sínum og hefur breiða krónu. Börkurinn er ljós og dökk brumin verða því mjög áberandi að vetrinum, sérstaklega endabrumin. Blöðin eru stakfjöðruð og minna í fljótu bragði á blöð reyniviðar þótt tegundirnar séu óskyldar.