Útgefið efni
Ársrit Skógrækt ríkisins
Á hverju ári gefur stofnunin út viðamikið og fjölbreytt rit þar sem farið er yfir helstu viðburði ársins. Meginuppistaða ritsins er fræðilegt efni af ýmsum toga, en m.a. er fjallað um skógarnytjar, skipulagsmál, skaðvalda, fræðslumál og rannsóknir.
Ársskýrslur skógarvarða
Skógarverðir eru nú fjórir talsins, einn í hverjum landshluta, en fyrr á tímum voru þeir ýmist færri og fleiri. Ár hvert skrifa skógarverðir skýrslu um sitt svæði og fjalla þar um ýmis áhugaverð málefni. Hér er að finna heila öld skógræktar í landinu skrásetta, þ.e. skýrslur allt frá árinu 1909 til síðasta árs.
Mógilsárfréttir
Tilgangur ritsins er að flytja fréttir af því sem er að gerast hverju sinni á Rannsóknarstöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá og kynna starfsemina sem þar fer fram.
Ýmis rit
Hér að finna ýmis rit sem Skógræktin hefur gefið út, t.d. Sveppahandbókina vinsælu, leiðbeiningar um skógrækt í skipulagsáætlunum sveitafélaga og fræðsluveggspjald um birki.

