Lesið í skóginn
Í verkefninu Lesið í skóginn er áhersla lögð á að þátttakendur læri um skóginn, skoði hann og fjölbreyttar hliðar hans. Einnig gefist tækifæri til nytja og upplifunar í skólastarfi og fyrir almenning.
Verkefnið skiptist í tvo hluta:
Annars vegar er um að ræða námskeiðin Lesið í skóginn - tálgað í tré sem eru almenn námskeið um samþætt verkefni í ferskum skógarnytjum, skógarhirðu og tálgutækni. Hins vegar Lesið í skóginn með skólum sem miða að því að þróa verkefni í samþættu útinámi sem tengjast öllum námsgreinum í skólastarfi.
Markmið verkefnisins eru að efla þekkingu og vitund sem flestra á gildi skógarins fyrir náttúruna, manninn, menningu og sögu, samfélag og efnahag þjóðarinnar. Einnig er áhersla lögð á að sinna kennaramenntun og skólasamfélagi með því að safna saman reynslu og þekkingu og miðla henni til annarra.
Verkefnið hefur frá upphafi verið skilgreint sem þróunarverkefni þar sem litið er svo á að þróun þess standi enn yfir þó mikil reynsla og þekking hafi vissulega orðið til og áherslur og aðferðir breyst með fenginni reynslu, s.s. við skipulag útináms og vinnu í skógarumhverfi.

