Viðburðir

13.02.2010 Atburðir

Þorrablót og fræðslufundur skógarbænda


Félagar í Félagi skógarbænda á Suðurlandi og Félagi skógarbænda á Vesturlandi boða til fræðslufundar og þorrablóts skógarbænda á Hótel Sögu laugardaginn 13. febrúar n.k.

Dagskrá:

 15:00 Bjarni Diðrik Sigurðsson, prófessor við LbhÍ: Hvað getur skógurinn gefið okkur annað en timbur?
 15:45 Kaffihlé
 16:00 Böðvar Guðmundsson, áætlunarfulltrúi Sls: Tegundir og kvæmi í jólatrjáræktun
 16:20 Aðalsteinn Sigurgeirsson, forstöðumaður Rannsóknastöðvar Skógræktar ríkisins á Mógilsá: Rannsóknir og þróun í skógrækt
 17:05 Auður Ottesen, ritstjóri: Útgáfa á fræðsluefni í skógrækt
 17:25 Fundarslit
 Fundurinn er í boði skógarbændafélaganna.
 18:30 Þorrablót skógarbænda.
 Boðið veður upp á þorramat að hætti Hótel Sögu.

Verð á mann er kr. 5.300. Þátttaka tilkynnist í tölvupóstfang bjorn(hjá)sudskogur.is eða í síma 480-1822 fyrir 1. febrúar.
Þeir sem vilja gista á Hótel Sögu hafi samband við hótelið og panti hver fyrir sig gistingu. Verð kr. 9.000 fyrir eins manns herbergi og kr. 10.000 fyrir tveggja manna herbergi. Innifalið í verðinu er frír aðgangur að Mecca Spa, morgunverður og frítt þráðlaust internet. Tilkynnið við bókun að um er að ræða bændagistingu.
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica