Leiðarljós
Leiðarljós
Í faglegu starfi sínu skal Skógrækt ríkisins taka sér til fyrirmyndar vistfræðilega hegðun framsækins og dugmikils frumherja í plönturíkinu. Með þekkingaröflun, faglegri leiðsögn og stöðugri endurskoðun starfseminnar skal hún leitast við að nema auðnir, byggja upp skjól og næringarforða (í formi þekkingar), búa í haginn fyrir aðra – hörfa síðan og nema nýjar auðnir.
SR leitast við að sinna þekkingar-, þróunar- og þjónustuhlutverki sínu gagnvart stjórnvöldum, almenningi og öðrum hagsmunaaðilum þannig að skógrækt á Íslandi megi blómstra um ókomna framtíð.
SR vinnur að því að ný heildstæð skógræktarlög líti dagsins ljós.
SR leitast við að sjá til þess að á hverjum tíma sé til þekking og reynsla hjá stofnuninni sem nýtist til rannsókna, eftirlits, ráðgjafar, fræðslu og þekkingarmiðlunar til þeirra sem stunda skógrækt.
SR leitast við að mæta kröfum um góða stjórnsýslu og markvissa vinnslu verkefna stofnunarinnar á sviði skógræktar.
Framtíðarsýn
Faglegar áherslur
Skógrækt ríkisins aflar og miðlar samfélaginu þekkingu og reynslu á sviði skógræktar og hefur yfirsýn yfir stöðu málaflokksins sem byggist á eftirlits-, rannsóknar-, fræðslu-, og þjónustuhlutverki stofnunarinnar.
SR beitir sér fyrir því að byggja upp skógarauðlind og gæta sérstaklega að framlagi hennar til kolefnisbúskapar heimsins. Það er gert með því að veita framlög til landeigenda, einkum bænda, til skógræktar þar sem skógræktarskilyrði eru vænlegust. Slík skógrækt þarf að vera vandlega skipulögð af skógfræðingum m.t.t. tegundavals og aðferða. Með því verða mestar líkur á að upp vaxi skógur þar sem viðarvöxtur og viðargæði eru slík að skógurinn verði að lokum arðbær (efnahagslega sjálfbær) ásamt því að vera vistfræðilega sjálfbær og í sátt við viðhorf almennings (félagslega sjálfbær).
SR leggur áherslu á að tryggja og bæta erfðir trjátegunda. Rækta þarf skóga með það að markmiði að framleiðni þeirra á viði, öðrum afurðum og annarri þjónustu sé mikil. Þetta verður best gert með úrvali, kynbótum og frærækt hérlendis.
Stefna SR í landnýtingu felur það m.a. í sér að þegar skóglendi er nýtt til beitar sé beit stjórnað þannig að það geti endurnýjað sig á eðlilegan hátt. Þetta þýðir að engin beit skuli vera í skóglendi að vetrarlagi og að sumarbeit verði hófleg. Framfylgja þarf reglum um eftirlit með innflutningi lifandi plantna og plöntuhluta, en með þeim er líklegast að skaðvaldar komist til landsins.
Viðhalda þarf, vernda og auka líffræðilega fjölbreytni í skógarvistkerfum. Auka þarf rannsóknir á líffræðilegri fjölbreytni í íslenskum skógum, bæði birkiskóglendum og ræktuðum skógum, því þekking er grundvöllur þess að hægt sé að taka skynsamlegar ákvarðanir og forðast slys. Einnig þarf að efla ráðgjöf og fræðslu.
Viðhalda þarf og auka verndarhlutverk skóga. Með verndarhlutverki skóga er einkum átt við jarðvegsvernd, vatnsvernd, vatnsmiðlun og skjólmyndun. Þá má líta á kolefnisbindingu skóga sem loftslagsvernd.
Halda þarf áfram að rækta skóga sem einkum eru ætlaðir til útivistar í grennd við þéttbýli. Stuðla þarf að góðu aðgengi fólks að skóglendum. Rækta þarf skóga sem bæði eru aðlaðandi til útivistar og til prýði í landslaginu.
Almennar áherslur
Stjórnendur SR munu sjá til þess að stjórnvöld geti ávallt borið traust til stofnunarinnar hvað varðar fagleg, fjármálaleg og stjórnunarleg málefni.
SR beitir sér fyrir því að treysta framþróun skógræktar með faglegri ráðgjöf, markvissri skógarfræðslu og skógaruppeldi, m.a. með öflugu samstarfi við skógræktarfélög, skógarbændur, skóla og uppeldisstofnanir.
SR er vakandi fyrir möguleikum sem gefast til samstarfs eða samhæfingar við alla aðila sem vinna að verkefnum á sviði skógræktar og landbóta.
SR er framsækin stofnun, sem mótar stefnu, samræmir vinnubrögð, hvetur til verka og er leiðandi á sviði rannsókna og þekkingarmiðlunar í skógrækt.
Stofnunin verður fjármögnuð af framlagi ríkisins á fjárlögum en byggir rekstrarafkomu sína einnig á öflun sértekna. Lögð er áhersla á að sértekjuöflun verði ekki sjálfstætt markmið, heldur verði lagt mat á arðsemi og réttmæti sértekjuöflunar í hverju verkefni fyrir sig.
Hagsmunaaðilar í skógrækt treysta því að SR sé sá aðili sem best er til þess fallinn að fara með forystu í skógræktarmálum á Íslandi, hafa yfirsýn og vera málsvari skógræktar á landsvísu.
Stefnt er að því að til verði öflug upplýsingaveita, m.a. um útbreiðslu og ástand skóglenda á Íslandi (Íslensk skógarúttekt) sem verði grundvöllur að góðri ákvarðanatöku á þessu sviði.
SR á að vera eftirsóttur vinnustaður fyrir metnaðarfulla einstaklinga með menntun, reynslu og hæfni til að takast á við áhugaverð verkefni. Vinnuaðstaða, aðbúnaður og tæki taka mið af eðli starfseminnar.
Starfsmenn stofnunarinnar eru helsta auðlind hennar. Árangurinn af starfseminni byggist á hæfni, framsýni og frumkvæði þeirra.
Stofnunin stefnir að því að kynna starfsemi sína með samræmdum hætti fyrir helstu markhópum, þannig að sem flestir viti fyrir hvað hún stendur og hvert hlutverk hennar er.
Notendur þjónustu SR skulu hafa aðgang að hagnýtum upplýsingum um skógrækt, m.a. á heimasíðu sem verður að hluta gagnvirkur miðill. Öll frekari þróun starfseminnar mun taka mið af því að nýta rafræn samskipti til hins ýtrasta. SR stefnir að því að þjónustan þróist í takt við kröfur upplýsingasamfélagsins.

