Hlutverk
Tilgangur
Skógrækt ríkisins er þekkingar-, þróunar- og þjónustuaðili sem vinnur með og fyrir stjórnvöld, almenning og aðra hagsmunaaðila að rannsóknum, ráðgjöf og þekkingarmiðlun á sviði skógræktar. Þá er stofnunin í forsvari fyrir Íslands hönd í erlendu samstarfi á sviði skógræktar.
Skógrækt er þáttur í mótun búsetuskilyrða á Íslandi og hefur mikil áhrif á sviði umhverfismála og auðlindasköpunar í landinu.
SR leitast við að auka og beita til fullnustu þekkingu og reynslu starfsmanna stofnunarinnar í þágu skógræktar á Íslandi.
SR hefur frumkvæði að og tekur þátt í innlendu og erlendu samstarfi á fagsviðum sínum.
Hlutverk í hnotskurn
Þekking
- Leiðandi afl
- Málsvari skógræktar
- Vörður sem vísa veginn
- Fagþekking/reynsluþekking
Þjónusta
- Samskipti út á við
- Hagnýt miðlun
- Miðlun vegna ímyndar
- Samræming – yfirsýn/málsvari
- Verndun skóga
Þróun
- Þjóðskógar
- Auðlind – verðmæti
- Þróun fjölnytjaskógræktar
- Skógvæðing Íslands
Hlutverki sínu sinnir stofnunin með því að:
- vinna að rannsóknum og þróunarstarfi.
- stunda og stuðla að öflun og miðlun hagnýtra upplýsinga um skógrækt á Íslandi.
- veita ráðgjöf til stjórnvalda og annarra á sviðiskógræktar.
- sinna áætlanagerð og reglulegu mati á starfseminni.
- koma á stjórnskipulagi sem þróast með verkefnum stofnunarinnar.
- hafa frumkvæði að samnýtingu upplýsinga, búnaðar og þekkingar með aðilum í skyldri starfsemi.
- fylgjast með þróun sambærilegrar starfsemi erlendis og hagnýta þær upplýsingar sem að gagni koma.
- greina þarfir íslensks samfélags fyrir upplýsingar á sviði skógræktar og tryggja að þær verði hafðar að leiðarljósi í starfseminni.
- hvetja og styðja aðra aðila í samfélaginu til skógræktar.
- eiga öflugt samstarf við aðila sem vinna að málefnum er tengjast hlutverki stofnunarinnar.
Ábyrgð starfsmanna SR felst í því að vinna að því að hún uppfylli hlutverk sitt. Það gera þeir með:
- stöðugu mati á reynslu sinni og endurnýjun þeirrar þekkingar sem þeir búa yfir, þannig að hvort tveggja sé í takt við þarfir samfélagsins hverju sinni.
- setningu verklagsreglna og með sameiginlegu mati á árangri sem ætlað er að tryggja gæði starfsins.
- því að sýna frumkvæði, kraft og áræðni í störfum sínum.
- eftirliti með framkvæmd laga um skógrækt og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra.

