Stefna
Stefnumótun Skógræktar ríkisins má nálgast hér á vefnum (sjá kafla til vinstri) og einnig hlaða niður í heild sinni:
Um stefnumótunina
Greiningarvinna vegna stefnumótunar þessarar er unnin af starfsmönnum Skógræktar ríkisins (SR). Hún byggist á greiningu á starfseminni sem fram fór í haustið 2002 og meginniðurstöðum stefnumótunarfundar sem fram fór í desember sama ár. Meginatriði stefnunnar voru mótuð á grundvelli vinnu starfsmanna og voru þau síðan útfærð af ráðgjöfum IBM í samvinnu við stjórnendur stofnunarinnar.
Í eftirfarandi greinargerð er að finna skilgreiningu á hlutverki SR, leiðarljós og framtíðarsýn, nýtt stjórnskipulag, áherslur stofnunarinnar gagnvart hagsmunaaðilum og stefnumótandi þætti innri málaflokka.
Stefna SR er safn ákvarðana sem hafa langtímaáhrif á framkvæmd verkefna stofnunarinnar og stuðla að réttri nýtingu þeirra fjármuna og þess mannafla sem ráðstafað er til verkefna hennar. Mikilvægt er að þær leiðir og aðgerðir sem nauðsynlegar eru til breytinga verði skilgreindar, þeim hrint í framkvæmd og árangur mældur.
Stefnumótun SR tekur mið af lögbundnu hlutverki stofnunarinnar og byggist á þremur meginstefjum: öflun og miðlun þekkingar, þjónustu við hagsmunaaðila og þróun starfseminnar í takt við þarfir íslensks samfélags.
Framtíðarsýnin er sett fram til viðmiðunar fyrir þau markmið sem SR vill ná, þannig að hægt verði að uppfylla nútímalegar kröfur í opinberum rekstri um öflun og miðlun þekkingar og reynslu, skilvirka þjónustu og uppbyggileg samskipti við alla hagsmunaaðila.

