Launastefn
Launastefna
Markmið Skógræktar ríkisins er að hæfir starfsmenn veljist til starfa hjá stofnunum og fyrirtækjum hennar, þeir uni þar hag sínum og hafi metnað til að takast á við þau verkefni sem bíða úrlausnar. Launastefnu Skógræktar ríkisins er ætlað að styðja við og efla þjónustu stofnunarinnar að gæðum og skilvirkni. Hún skal taka mið af heildarmarkmiðum og starfsáætlunum stofnunarinnar.
Launaákvarðanir
Launaákvarðanir skulu vera gagnsæjar og málefnalegar. Mikilvægt er að laun taki mið af þeim kröfum sem starf gerir til starfsmanns með tilliti til ábyrgðar, álags og sérhæfni. Einnig er mikilvægt að laun taki mið af hæfni og frammistöðu starfsmanna og hvetji starfsmenn til að veita sem besta þjónustu.

