Jafnréttisstefna
Markmið jafnréttisáætlunar Skógræktar ríkisins er að stuðla að jafnrétti kynjanna, jafnri stöðu og virðingu kvenna og karla innan stofnunarinnar, ennfremur að minna stjórnendur og starfsfólk stofnunarinnar á mikilvægi þess að allir fái notið sín án tillits til kynferðis. Skógrækt ríkisins telur mikilvægt að nýta til jafns þá auðlegð sem felst í menntun, reynslu og viðhorfum kvenna og karla.
Hjá Skógrækt ríkisins verður unnið gegn viðhorfum sem leiða til aðstöðumunar kvenna og karla innan stofnunarinnar. Jafnréttismál og leiðir til að vinna að jafnri stöðu kynjanna verði virkur þáttur í starfsmannastefnu skógræktarinnar.
Skógrækt ríkisins leggur áherslu á:
Launajafnrétti
Við ákvörðun launa skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað. Konum og körlum skulu greidd jöfn laun og skulu þau njóta sömu kjara fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf og hvers konar frekari þóknana, beinna og óbeinna, hvort heldur er með hlunnindagreiðslum eða öðrum hætti. Einnig skulu þau njóta sömu kjara hvað varðar lífeyris-, orlofs- og veikindarétt og hvers konar önnur starfskjör eða réttindi sem metin verða til fjár, sbr. 14. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000.
Auglýsingar
Í öllum auglýsingum á vegum Skógræktar ríkisins skal gæta jafnræðis og jafnrar virðingar kynjanna, sbr. 18. gr. jafnréttislaga. Atvinnuauglýsingar skulu að jafnaði vera kynhlutlausar, en sé um að ræða störf þar sem hallar á annað kynið skal, þar sem það á við, vekja athygli á því markmiði jafnréttisstefnunnar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreinar.
Ráðningar
Jafnréttissjónarmið skulu metin til jafns við önnur mikilvæg sjónarmið þegar ráðið er í stöður hjá Skógrækt ríkisins. Umsækjandi af því kyni sem er í minnihluta í viðkomandi starfsgrein skal að öðru jöfnu ganga fyrir við ráðningu þegar hann er jafnhæfur eða hæfari. Ávallt skal leitast við að hafa hlutfall kynjanna sem jafnast. Við ráðningar er óheimilt að mismuna kynjum á grundvelli fjölskyldustöðu eða annarra þátta þar sem ætla má að kynbundnir einkahagir hafi áhrif. Þess verði gætt við úthlutun verkefna, tilfærslu í störfum, tækifæra til að axla ábyrgð og framgangs í störfum að einstaklingum sé ekki mismunað vegna kynferðis.
Starfsþjálfun og endurmenntun
Tækifæri starfsmanna til starfsþjálfunar, endurmenntunar og símenntunar skulu vera jöfn og óháð kyni. Sérstaklega skal gæta að því að tækifæri til menntunar sem miða að því að auka hæfni til ábyrgðar og framgangs í starfi standi konum jafnt sem körlum til boða og hvetja það kynið sem á hallar í þeim efnum sérstaklega til að sækja slíka menntun.
Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs
Leitast er við að gera starfsmönnum kleift að samræma starfsskyldur sínar og skyldur gagnvart fjölskyldu með sveigjanlegum vinnutíma, hlutastörfum eða annarri vinnuhagræðingu.
Starfsandi og líðan starfsmanna
Til þess að búa sem best að líðan starfsmanna skógræktarinnar skal unnið gegn hvers konar fordómum, einelti, kynferðislegri áreitni* og öðru ofbeldi og undir engum kringumstæðum láta slíkt óátalið. Tryggja skal í hvívetna rétt þess sem kann að verða fyrir hvers konar ofbeldi af slíku tagi og leita allra mögulegra leiða til lausna.
* Kynferðisleg áreitni er skilgreind svo í 17. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000 :
Kynferðisleg áreitni er kynferðisleg hegðun sem er ósanngjörn og/eða móðgandi og í óþökk þess sem fyrir henni verður, hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess eða þeirra sem fyrir henni verða og er haldið áfram þrátt fyrir að gefið sé skýrt í skyn að hegðunin sé óvelkomin. Kynferðisleg áreitni getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn.
Ábyrgð
Stjórnendur og starfsmenn Skógræktar ríkisins bera ábyrgð á að gæta jafnréttis kynja innan stjórnkerfis stofnunarinnar, á vinnustöðum hennar og í þjónustu við viðskiptavini hennar. Yfirstjórn skal kynna nýjum starfsmönnum efni jafnréttisáætlunar við ráðningu.

