Starfsmannahandbók

Fjármálasvið fer með málefni starfsfólks Skógræktar ríkisins.  Þeir sem hafa góðar hugmyndir fram að færa varðandi það sem má betur fara í málefnum starfsfólks eru hvattir til að koma þeim á framfæri við fjármálastjóra.

Markmið

  • Starfsfólk SR á Austurlandi og fjölskyldur í Hallormsstaðaskógi á aðventu 2008

    Að SR sé eftirsóttur vinnustaður fyrir starfsfólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn, með góðri vinnuaðstöðu, greiðum aðgangi að upplýsingum og möguleikum á símenntun sem stuðli að jákvæðri starfsþróun innan SR og skógræktargeirans almennt.
  • Að vera með skýra starfsmannastefnu þar sem m.a. kemur fram að nýir starfsmenn fái leiðbeiningar og kynningu.
  • Að rekin verði afkastahvetjandi launastefna, endurmenntun starfsfólks fari fram með reglubundnum hætti og gætt sé að skynsamlegri nýtingu mannauðs. Stefnt er að því að hver starfsmaður njóti frammistöðu sinnar innan stofnunarinnar.
  • Að SR geti boðið starfsfólki sínu samkeppnishæf starfskjör.
  • Að starfsmannabragurinn einkennist af vinnugleði, gagnkvæmum trúnaði og opnum samskiptum.
  • Að jafnréttissjónarmiðum og jafnræðisreglu verði haldið á lofti innan stofnunarinnar.

Leiðir og aðgerðir

  • Starfsfólk SR á Austurlandi og fjölskyldur í Hallormsstaðaskógi á aðventu 2008Að fela ákveðnum starfsmanni umsjón starfsmannamála. Starfs-mannamál heyra undir fjármálasvið og fjármála-stjóra.
  • Að semja handbók fyrir nýja starfsmenn og taka upp kerfisbundna nýliða-þjálfun.
  • Að semja starfsmannastefnu. Drög að starfsmannastefnu liggja fyrir og hefur starfsfólki verið gefinn kostur á að koma með athugasemdir við þau.  Stefnt er að því að mynda vinnuhóp í haust sem skilar af sér nýrri starfsmannastefnu.
  • Regluleg starfsmannaviðtöl. Vinna við starfsmannaviðtöl er hafin og nú hafa um 30 starfsmenn fengið starfsmannaviðtal og hefur reynslan verið nokkuð góð.  Stefnt er að því að ljúka starfsmannaviðtölum á haustmánuðum.
  • Haldnir séu starfsmannafundir eftir þörfum, eða starfsmenn upplýstir eftir öðrum leiðum.
  • Starfslýsingar og skilgreind verksvið verði til fyrir öll störf innan stofnunar. Vinna við nýjar starfslýsingar er komin vel á veg og ættu allir starfsmenn að hafa fengið nýja starfslýsingu fyrir áramót
  • Að meta endurmenntunarþörf starfsfólks og semja endurmenntunarstefnu. Haft hefur verið samband við Starfsmennt til að meta endurmenntunarþörf.  Ákveðið var að fara ekki í samstarf við Starfsmennt, starfsmannastjóri mun meta endurmentunarþörf í starfsmannaviðtölum.
  • Að hafa skýra launastefnu þar sem m.a. er tekið mið af mælanlegri frammistöðu starfsmanna og endurmenntun.  Búið er að gera stofnanasamninga við öll stéttarfélög starfsmanna SR
  • Að taka upp árangursmælingar.
  • Að saman fari völd og ábyrgð – aukin valddreifing sé höfð að leiðarljósi.
  • Skriflegar öryggisreglur starfsmanna.  Sjá www.skogur.is
  • Tryggt verði að ákvarðanir um ráðningar í störf séu teknar á málefnalegum grundvelli. Að stefnt verði markvisst að því að auka hlut kvenna í stjórnunarstöðum hjá stofnuninni, með því að hvetja hæfileikaríkar konur til starfsnáms, endur- og símenntunar.
  • Að nýta möguleika á starfsmannaskiptum – bæði innan og utan stofnunar.
  • Að bæta starfsanda með auknum samverustundum utan vinnustaðar.
  • Að setja upp hugmyndabanka um bætta starfsaðstöðu stofnunarinnar. Hugmyndabanki hefur verið settur upp á starfsmannaþjónustu hluta skogur.is.

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica