Myndasafn - Heimsókn norrænna forsætisráðherra, 15. júní 2009

  • Flaggað í skóginum.

    Fánar þeirra fimm Norðurlandaþjóða sem funduðu á Héraði. (mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir)

  • Gengið um trjásafnið á Hallormsstað.

    Fremst má sjá þau Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og Borgþór Kjærnested, túlk. (mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir)

  • Gjafir í skóginum.

    Jón Loftsson, skógræktarstjóri Skógræktar ríkisins, ávarpar gesti og afhendir forsætisráðherrum bækur um skógrækt. (mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir)

  • Gjafir í skóginum.

    Forsætisráðherrar taka við bókagjöfum frá Skógrækt ríkisins. (mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir)

  • Listsýning í undirbúningi.

    Undirbúningur listsýningar sumarsins í Hallormsstaðaskógi skoðaður. (mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir)

  • Njóta veðurblíðunnar í skóginum.

    Forsætisráðherrar og föruneyti í Hallormsstaðaskógi. Fyrir miðri mynd má sjá þau Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra Íslands og Jón Loftsson, skógræktarstjóra Skógræktar ríkisins. (mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir)

  • Ráðherrar við Lagarfljót.

    Norrænu forsætisráðherrarnir (f.v.) Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur; Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra Íslands; Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs og Matti Vanhanen, forsætisráðherra Finnlands. Forsætisráðherra Svíþjóðar, Fredrik Reinfeldt, var farinn aftur til Svíþjóðar þegar skógurinn var heimsóttur. (mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir)

  • Stund milli stríða.

    Á Hallormsstað, við Lagarfljót. (mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir)

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica