Málþing um skógarfræðslu
Grenndarskógar auka fjölbreytni í skólastarfi og gefa fleiri nemendum tækifæri til að finna viðfangsefni við sitt hæfi í skólagöngunni 19. febrúar í Kennaraháskóla Íslands
frá kl. 14.00- 17.00 í stofu H 207.
Þuríður Jóhannsdóttir, sérfræðings hjá Rannsóknastofnun Kennaraháskóla Íslands kynnir mat á skólaþróunarverkefninu Lesið í skóginn: Grenndarskógur- ný tækifæri í skólastarfi.
Markmið skógarfræðslunnar er að nýta grenndarskóga í skólastarfi.
Í Reykjavík hefur samstarfið um verkefnið Lesið í skóginn staðið í 5 ár. Á þeim tíma hafa 10 grunnskólar eignast grenndarskóg sem sína útiskólastofu. Í grenndarskógunum hefur verið byggð upp aðstaða útikennslu. Starfsmenn skólanna fá fræðslu og þjálfun í skógarhirðu og leiðbeiningar um að nota skóginn sem útikennslustofu. Flesta námsgreinar má kenna í útistofunni. Nám í útiskólastofu stuðlar að aukinni hreyfingu nemenda, tengir þá við náttúruna og nemendur fá margs konar þjálfun í lífsleikni.
Á málþinginu koma fram niðurstöður starfsins í skólunum á landsbyggðinni. Jafnframt er bent á nýjar leiðir í skólastarfi með skógarfræðslu. Á grundvelli þróunarverkefnisins í Reykjavík var árið 2003 stofnað til samstarfs við 7 grunnskóla á landsbyggðinni. Samstarfsaðilar í Reykjavík eru: Skógrækt ríkisins, Umhverfissvið Reykjavíkurborgar, Kennaraháskóli Íslands, Skógræktarfélag Reykjavíkur, Kennarasamband Íslands, og Menntasvið Reykjavíkurborgar.
Skógrækt ríkisins og Norðurlandsskógar hafa leitt skógræktarþátt skólanna á landsbyggðinni. Kennaraháskóli Íslands og Kennarasambandið hafa séð um tengsl við kennaramenntunina. Námsgagnastofnun hefur hlutverk varðandi námsefnigerð.
Þátttökuskólarnir í landsbyggðarverkefninu eru Laugarnesskóli, Andakílsskóli,
Kleppjárnsreykjaskóli, Varmalandsskóli, Hrafnagilsskóli, Hallormsstaðaskóli og
Flúðaskóli.
Nánari upplýsingar veita:
Ólafur Oddsson, s: 8630380
Þuríður Jóhannsdóttir, s: 8930826

