Fyrri skógartónleikum lokið
Fyrri skógartónleikar sumarsins fóru fram í trjásafninu á Hallormsstað s.l. sunnudag. Þeir Bjartmar Guðlaugsson og Rúnar Júl. skemmtu um 400 gestum í blíðskaparveðri.
Seinni tónleikarnir verða haldnir á sama stað sunnudaginn 17. ágúst, á Hallormsstaðadegi Ormsteitis. Þá koma Sniglabandið og Borgardætur fram.



