Fréttir
frett_21042008(1)

21.04.2008

Veturinn í skóginum

Vetursins 2007-2008 verður eflaust minnst fyrir tíð hvassviðri og mikinn snjó á sunnanverðu landinu. Stormar vetrarins gerðu vart við sig í skógunum og eftir veturinn má á nokkrum stöðum sjá brotin tré og tré sem rifnuðu upp með rótum. Var það einkum í eldri reitum sem nýverið voru grisjaðir en í heildina ekki mörg tré sem fórust. Þetta undirstrikar þó að skógarnir okkar hækka stöðugt í loftinu og eftir því sem tíminn líður og trén taka á sig meiri vind verður stormfall algengara. Því er nauðsynlegt að grisja tímanlega og varlega til að draga úr stormsköðum eins og hægt er.

Snjóalög voru óvenjumikil og langvarandi á Suðurlandi og olli það töfum við grisjun. Þá er viðbúið að nokkuð verði um snjóbrot í ungum teigum, eitthvað sem Norðlendingar kannast vel við frá fyrri tíð. Snjóalög voru ekki meiri en oft áður á Norðurlandi og á Austurlandi var veturinn ekki snjóþungur. Hitafar vetrarins var nokkuð stöðugt og án ótímabærra hlýindakafla sem hafa hrekkt okkur undanfarin ár. Því er ólíklegt að teljandi kalskemmdir verði þetta vor.

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica