Grisjunarútboð: Mjóanes á Fljótsdalshéraði
Skógrækt ríkisins óskar eftir tilboðum í grisjun og útkeyrslu í Mjóanesi á Fljótsdalshéraði. Um er að ræða tvo reiti af lerki sem eru alls 5,18 ha.
Heimilt er að bjóða í útkeyrslu viðar með vagni úr reitunum. Tilboðum í grisjun og útkeyrslu skal haldið aðskildum á tilboðsblaði. Heimilt er að skila inn frávikstilboðum. Nánari upplýsingar um reitina er að finna hér að neðan.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Skógræktar ríkisins á Hallormsstað eða senda í tölvupósti á netfangið thor[hjá]skogur.is fyrir 2.mars 2010 kl. 10:00. Tilboð verða opnuð á sama stað 2. mars kl. 11.00. Ekki eru gefnar upplýsingar um útboðið í síma en hægt er að óska eftir skýringum á útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á thor[hjá]skogur.is eða lalli[hjá]skogur.is.
Skógrækt ríkisins áskilur sér rétt til að taka tilboðum að hluta, í heild eða hafna öllum.
Útboðsgögn:


