Grisjunarútboð: Þjórsárdalur
Skógrækt ríkisins óskar eftir tilboði í grisjun í Þjórsárdalsskógi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Um er að ræða sitkagrenireit sem er 2,9 hektarar að stærð. Nánari upplýsingar um reitinn er að finna hér að neðan, í meðfylgjandi excelskjali og kortmynd. Heimilt er að skila inn frávikstilboðum.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Skógræktar ríkisins í Gunnarsholti, 851 Hella eða senda í tölvupósti á netfangið hreinn[hjá]skogur.is fyrir kl. 10:00 29. janúar 2010. Tilboð verða opnuð á sama stað kl. 11.00 29. janúar. Ekki eru gefnar upplýsingar um útboðið í síma en hægt er að óska eftir skýringum á útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á hreinn[hjá]skogur.is eða runar[hjá]skogur.is.
Skógrækt ríkisins áskilur sér rétt til að taka tilboðum eða hafna öllum.
Gögn:
Þjórsárdalur - tilboðseyðublað


