Skógardagurinn mikli - allir velkomnir og allt frítt
Á afmælisdegi bændaskógræktar á Héraði, þann 20. júní, verður boðið til einstakrar fjölskyldu- og skógarhátíðar í Hallormsstaðaskógi.
Í boði er fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna og frítt inn á svæðið. Félag skógarbænda á Austurlandi, Héraðs- og Austurlandsskógar, Skógrækt ríkisins og Barri, ásamt styrktaraðilum, bjóða þér að koma, fagna með okkur og njóta góðrar skemmtunar og ljúffengra veitinga í fallegu skógarumhverfi.
Dagskrá
í Trjásafninu í Mörkinni á Hallormsstað.
11:00-12:00 Skráning í skógarhlaup og skemmtiskokk.
12:00 Skógarhlaupið - ræsing í 14 km hlaup um skógarstíga.
Nánar á www.hlaup.is og www.heradsskogar.is.
Verðlaun í skógarhlaupinu eru einstakir útskornir gripir.
12:30 Fjölskylduhlaup - ræsing!
4 km skemmtiskokk fyrir alla fjölskylduna, bæði litla og stóra.
13:00-16:00 Formleg hátíðardagskrá.
Magga og við hin syngjum skógardagslagið svo undir tekur í skóginum.
13:30 Íslandsmeistarakeppni í skógarhöggi - keppni milli fremstu skógarhöggsmanna landsins - þar sem allt er í alvöru.
Tónlistaratriði - Blúsband Guðgeirs.
Fiðrildin flögra um skóginn og bjóða upp í dans og nú verða allir með!
Pjakkur og Petra spjalla við börnin um lífið í skóginum.
Skógarþrautir - léttar og skemmtilegar.
Boðið uppá heilgrillað naut að hætti Héraðsmanna.
Nauta- og skógarbændur ganga um beina og bjóða gestum og gangandi.
Grillaðar pylsur - Sumardrykkur frá M.S. - ferskur og frískandi.
Sjóðheitar skógarlummur með ilmandi rabarbarasultu og sjóðheitu ketilkaffi.
Smellið á auglýsinguna til að stækka hana.



