Nýtt grillsvæði í Hallormsstaðaskógi
Starfsfólk Skógræktar ríkisins á Hallormsstað hefur nú í haust unnið að gerð grillsvæðis fyrir gesti skógarins. Svæðið er staðsett við Lagarfljótið skamt utan við gamla birkiskóginn. Þar verða þrjú grillsvæði með borðum og grilli. Merktar gönguleiðir verða út frá svæðinu. Grillsvæðið verður tekið í notkun næsta sumar.
Mynd: Nicolaj frá Danmörku, Didier og Laura frá Costa Rica.

