Mjög víða hætta á haustfaraldri sitkalúsar
Nú á undanförnum vikum hefur stofnstærð sitkalúsar verið könnuð víðs vegar um land. Á höfuðborgarsvæðinu er mikil lús og nú þegar eru tré farin að láta verulega á sjá. Sama er að segja um fleiri staði á Suðvesturlandi, t.d. Selskóg hjá Grindavík, Reynivelli í Kjós og Akranes.
Í Borgarfirði og á Mýrum hefur ekki orðið vart við lús en eftir er að kanna ástand mála á öðrum svæðum á Vesturlandi. Á Vestfjörðum er töluvert um lús á svæðinu frá Patreksfirði að Ísafirði, þó mismikið, verst er ástandið á Patreksfirði. Barðaströnd, Ísafjarðardjúp og Strandir virðast vera laus við lús. Á Norðurlandi hefur ástandið aðeins verið kannað á Akureyri og Siglufirði og á báðum stöðum er veruleg lús.
Á Austurlandi er mjög veruleg lús á svæðinu frá Breiðdalsvík og suður í Hornafjörð. Aðrir hlutar Austurlands hafa ekki verið kannaðir. Á Suðurlandi er veruleg lús í Mýrdal, Selfossi, Hveragerði, Ölfusi og á Laugarvatni. Engin lús fannst hinsvegar í Haukadal, Reykholti í Biskupstungum, á Flúðum og á Kirkjubæjarklaustri.
Það er því full ástæða til að reikna með því að nú í haust verði faraldur í strandhéruðum, víðast hvar á landinu, en Borgarfjarðarsvæðið og innsveitir Suðurlands muni sleppa. Nú í lok ágúst er áformað að gera allsherjar úttekt á skaðvöldum í skógum og eftir þann leiðangur munu upplýsingar liggja fyrir um stofnstærð sitkalúsar á þeim svæðum sem enn hafa ekki verið könnuð.
Guðmundur Halldórsson
Skordýrafræðingur, Rannsóknastöð Skógræktar, Mógilsá

