Skaðvaldaferð
Dagana 28.-31. ágúst var útbreiðsla og skaðsemi trjásjúkdóma og meindýra könnuð. Leiðangursmenn voru Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, sveppafræðingur á Akureyrarsetri Náttúrufræðistofnunar Íslands, Halldór Sverrisson, sjúkdómafræðingur og Guðmundur Halldórsson, skordýrafræðingur sem báðir starfa á Mógilsá. Samtals var komið við á 43 stöðum á landinu og ástand skóga kannað. Yfirleitt reyndist heilbrigði trjágróðurs vera þokkalegt. Munar þar mestu um að birkimaðksfaröldrum sem hafa verið viðvarandi á austan og norðaustanverðu landinu allt frá 1998 er lokið. Við norðanverðan Breiðafjörð hefur hinsvegar geisað tígulvefarafaraldur fyrr í sumar og eru þar verulegar skemmdir. Ástand birkis er þó víðast hvar gott, nema töluvert var um birkiryð í Vestur Skaftafellssýslu. Greni er víðast hvar í sæmilegu ástandi og mun minna reyndist um sitkalús en þegar ástand hennar var athugað fyrr í sumar. Því standa góðar vonir til að mun minna verði um skemmdir af hennar völdum nú í haust en áður var óttast. Stafafura er einnig í þokkalegu standi en þó er töluvert um sviðnun á henni á Vesturlandi og sumsstaðar á Suðurlandi. Lerki er víða óhraustlegt, einkum á Suður- og Vesturland þar sem lerki hefur átt erfitt uppdráttar nú á undanförnum árum. Austur á Fljótsdalshéraði eru eldri lerkireitir einnig fremur tuskulegir en yngri gróðursetningar líta hinsvegar ágætlega út. Ösp er víða skemmd eftir haust- og vorfrost og asparryð nú að undanförnu og sumstaðar hafa myndarleg aspartré hreinlega geispað golunni. Þetta er mjög klónabundið. Asparryðið virðist hinsvegar hafa mjög hægt á sókninni. Ætlunin er að heildarniðurstöður þessarar ferðar og annarra slíkra könnunarferða nú í sumar og haust verði teknar saman og gefnar út sem Mógilsárrit.
Guðmundur Halldórsson, Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir og Halldór Sverrisson

