Ertuygla á Suðurlandi
Ertuygla á Suðurlandi
Nú í sumar, eins og raunar undanfarin sumur, hefur verið mjög mikið um ertuyglulirfur á Suðurlandi. Mikið hefur borist af kvörtunum frá skógræktendum, einkum í Rangárvallasýslu. Við könnun á útbreiðslu sjúkdóma og meindýra dagana 28-31 ágúst sáust miklar ertuygluskemmdir á lúpínu í Vestur-Skaftafellssýslu. Núna undanfarna daga hafa starfsmenn Mógilsár verið við mælingar á aspartilraun á Sóleyjabakka rétt sunnan við Flúðir. Þar er verið að bera saman mismunandi afkvæmahópa úr asparkynbótum. Þessar mælingar eru hluti af verkefninu “Betri Tré” sem Halldór Sverrisson stýrir. Á Sóleyjabakka eru miklar ertuygluskemmdir, líkt og í fyrra. Skemmdir eru mjög mismunandi eftir plöntum og einnig virðast þær vera mismunandi eftir afkvæmahópum. Sáralítið hefur drepist af plöntum á svæðinu, jafnvel þeim plöntum sem verst urðu úti í faraldrinum í fyrra. Kemur það heim og saman við athuganir Bjarna Diðriks Sigurðssonar á afleiðingum faraldurs á Skógasandi. Á Sóleyjabakka virðast asparplöntur sem skemmdust í fyrra yfirleitt vaxa lítið í ár. Þetta er ekki í samræmi við niðurstöður Bjarna Diðriks. Hugsanlega stafar þessi munur af því að á Skógasandi stóðu asparplönturnar í lúpínubreiðu og át lirfunnar á lúpínunni gæti hafa hraðað niðurbroti lúpínunnar og þar með losað um næringarefni. Á Sóleyjabakka er hinsvegar engin lúpína og slíkum áhrifum því ekki til að dreifa.
Guðmundur Halldórsson, skordýrafræðingur, Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins

