Máttur myglunnar á Fræðaþingi landbúnaðarins 2. og 3. febrúar
Fræðaþing Landbúnaðarins verður haldið í fundarsal Íslenskrar erfðagreiningar og á Hótel Sögu dagana 2. og 3. febrúar næstkomandi.
Eins og fyrri ár verður þar komið víða við í tengslum við skógrækt. Meðal erinda eru:
-
Nýsköpun landbúnaðar – skógrækt
-
Náttúrunýting – nýting náttúrulegra gæða landsins
-
Ísig vatns í jarðveg: Áhrif gróðurs og frosts
-
Íslenskar rannsóknir á vatnshringrás skóga
-
Skógvatn=áhrif skógræktar á vatnsgæði, vatnshag og vantalíf
-
Vistfræði evrópskra skóga og áhrif þeirra á umhverfið
-
Trjákynbótaverkefnið Betri tré
-
Svepprót í skógrækt – máttur myglunnar
Einnig verða fræðandi veggspjöld í ráðstefnusölum Hótel Sögu á sama tíma.
Vetrarfagnaður Fræðaþings verður jafnframt haldinn í Sunnusal á Hótel Sögu að kvöldi 2. febrúar.
Dagskrá þingsins og skráningu má nálgast hér http://www.hvanneyri.is/landbunadur/wglbhi.nsf/key2/rjor6jejkh.html

